
Katrín Kristófersdóttir er stofnandi Tveggja Mána og annar eigenda Kyrrðar heilsuseturs umboðsaðila Rayonex á Íslandi.
Hún útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík í janúar 2010, en hefur um árabil starfað við heildræna meðferð og faglega þróun á sviði líkams- og taugakerfisvinnu.
Katrín er menntuð Bowen-meðferðaraðili, Advanced höfuðbeina- og spjaldhryggjar meðferðaraðili (CranioSacral Therapy), KCR-meðferðaraðili (Kinetic Chain Release) og tíðnitæknir. Hún er aðstoðarkennari hjá Upledger-stofnuninni og tekur virkan þátt í faglegu starfi á Íslandi.
Katrín situr í stjórn CranioSacral félags Íslands (CSFÍ) og í stjórn Bandalags íslenskra græðara (BÍG).
Í starfi sínu leggur Katrín áherslu á að styðja við náttúrulega getu líkamans til jafnvægis, sjálfsstjórnunar og endurheimtar, með einstaklingsmiðaðri og faglegri nálgun sem byggir á reynslu, þekkingu og virðingu fyrir ferlum líkamans.